fimmtudagur, júní 02, 2005

Lélegasti bloggari í heiminum...

... mætt til skrifta enn einu sinni með rétt um mánaðarmillibili. Tja jæja svona er þetta bara. Maður getur ekki verið ógeðslega sniðugur og orðheppinn alla daga mánaðarins.
Það hefur svo sem allt og ekkert gerst á þessum tíma eins og oft vill vera. Það er komin manneskjan sem ætlar að taka við af mér í vinnunni. Hún er mjög áhugasöm og mér virðist hún eigi eftir að standa sig stórvel .. enda dálítið síðan ég gerði mér grein fyrir því að ég er er engan vegin ómissandi.
Ég mun síðan eyða seinustu vikunum mínum í vinnunni í öðru starfi þar sem ég mun sjá um alls kyns "sérverkefni" mér líður svolítð eins og James Bond fyrir utan að ég er kvenkyns og mun ekki ganga með byssu.

Unglingurinn á heimilinu er formlega genginn í fullorðinna manna tölu enda útskrifaðist hún núna um seinustu helgi. Nýstúdentinn er þessa stundina í útskriftarferðinni sinni og síðan tekur alvara lífsins við þegar heim verður komið.

ÉG verð nú samt að viðurkenna að það örlar svolítið á svona empty nest syndromi hjá mér enda hef ég verið ábyrg fyrir henni í of mörg ár til að það snerti mig ekki að sá tími sé að líða undir lok. Ætla samt í framhaldi að hvíla mig aðeins á uppeldishlutverkinu og hugsa reyndar til þess með gleði að nú er 20+ ár þangað til ég þarf að útskrifa næst þannig að ég held ég sé safe í bili.

Ég er líka búin að kíkja á sveppinn í millitíðinni og hafði það gott hjá honum en þetta var bara alltof stutt stopp, gisti bara eina nótt :(. En það horfir nú til betri vegar með það enda er ég að fara í sumarfrí 13. júní og aldrei að vita nema að maður láti sjá sig fyrir norðan. Lol eins og það sé spurning. Mun samt vona að ég þurfi að nota eitthvað af sumarfríinu í flutninga, enda verði íbúðin þá seld, í það minnsta komin á sölu.

Hef ekki mikið að segja meira, ég þakka þeim sem hlýddu,
ása