fimmtudagur, október 21, 2004

In the end there will only be one

Ok, ég viðurkenni það. Ég horfi á survivor, samt ekkert veik. Þoli alveg að missa af einum og einum þætti... næ þá bara endursýningunni ;)
Hef einmitt svolítið verið að velta fyrir mér sjónvarpsglápi mínu. Á mánudögum er survivor og ok reyndar one tree hill :* já ég horfi.. en bara af því að það er á undan survivor.
á þriðjudögum er það innlit/útlit og judging amy. Á miðvikudögum er það americas next top model. Á fimmtudögum er það csi: miami. Á föstudögum eitthvað sem ég man ekki alveg hvert er. Og á laugardögum er það charmed. Svolítið lame að eiga einhvern þátt á hverju kvöldi. Held ég verði að fara að hætta að horfa á sjónvarp. Langar að fara að gera eitthvað uppbyggilegt. Maður er nefnilega svo ótrúlegur að maður heldur alltaf að maður ætli að verða ógó duglegur... bara ekki núna.. heldur seinna... veit ekki alveg hvenær maður heldur að seinna sé. Er að spá í hvort seinna verður ekki einhvern tíman fljótlega... ég held það. Ætla að hugsa um þetta betur... á morgun ;)

Er búin að ná að mála hálft herbergið mitt. Ehh reyndar til að segja satt þá málaði ég það nú ekki sjálf... lol... heldur málaði jói megnið af þessu. lol Hann kom í bæinn á föstudaginn og vantaði gistingu og ég hafði hugsað mér að biðja frænku að hjálpa mér að mála þetta kvöld og því var það svo að við enduðum 3 í málaragallanum að sletta á veggina. Og áður en nokkrum dettur í hug að spyrja þá var ekkert í gangi! Bara hafa það á hreinu.

Eru búnir að vera erfiðir dagar í vinnunni, eru 2 búnar að vera veikar í 2 daga og þá er ekki talin með þessi sem er í 6 vikna veikindaleyfinu! Þannig að við höfum bara verið 2 núna í 2 daga. Enda sést það líka á búðinni, kannski samt mest fyrir aftan. Enda er ofsalega lítið sem maður kemst yfir þegar maður þarf að vera á sífelldum hlaupum.

Er að fara í haustlitaferð á laugardaginn. Verður örugglega gaman, var samt aðeins minni mæting en ég hefði viljað. En það er allt í lagi. Læt ykkur vita.

Fyrir ykkur sem hefur hungrað í fréttir af skemmtanalífinu mínu get ég huggað með að það gengur mjög vel. Undanfarnar helgar hef ég farið út 1 til 2 kvöld með reyndar undantekningunni um þar seinustu helgi þá fór ég ekkert út... minnir mig.

jæja, nóg af mér,
ses snart
ása

sunnudagur, október 10, 2004

Tíminn líður trúðu mér, taktu maður var á þér...

Jæja, þá er latasti bloggari landsins loksins sestur við lyklaborðið til að hamra inn nokkrar setningar.
Það er í raun svolítið brjóstumkennanlegt hversu lítið er í raun í gangi í mínu lífi. Það sem hefur gerst á þeim tíma sem liðinn er síðan seinast var sest fyrir framan þessa skjámynd er hvorki merkilegt né mikið.
Ég fór reyndar jú í sumarbústað með ÁDÍ-ingum. Það var massa gaman. Var líka ákveðið í framhaldinu að athuga kosti og galla þess að kíkja til Ítalíu á næsta ári. Leigja villu í Tuscany og hafa það gott. Verður örugglega æði ef það gengur eftir.
Hef náttulega verið að skemmta mér líka um helgar. Hef ákveðið að hætta að telja þær enda hefur það lítið upp á sig annað en að valda því að fólk haldi að ég sé áfengissjúk þegar það er alls ekki málið. Enda hef ég ekki bragðað áfengi allar þær helgar sem ég hef verið að djamminu.

Byrjaði jú á hugleiðslunámskeiði hjá Ljósheimum lofar góðu, en er reyndar bara búin í 1 tíma. Sjáum hvað setur hvort ég finn innri frið eður ei.

Hef lengi verið á þeirri skoðun að maður læri eitthvað nýtt á hverjum degi.
Í gærkveldi lærði ég t.d. að ef ég ætla að fara á Ópus þá þarf ég að vera full.
Og að þegar ég er á skemmtistað og einhver stígur fyrir framan mig eða stendur á einhvern hátt í veg fyrir mér að 1)stoppa 2) horfa á viðkomandi 3)taka ákvörðun um hvort ég hrindi viðkomandi í burtu eða ekki.
Var nefnilega stöðvuð á leið minni á dansgólfið á Viktor og eins og vani er þá byrjaði ég á því að reyna að troða mér framhjá, þegar það virkaði ekki leit ég upp og hristi höfuðið eins og vanalega. Til þess eins að horfa framan í frekar huggulegann gæja sem ég hefði ekkert haft á móti að tala við frekar. En hann verandi kurteis herramaður sté þá til hliðar og ég var búin að klúðra því!
Stupid, stupid, stupid.

En svona gengur lífið.

A bien tôt,
ása

E.S. Langar að hvetja ykkur til að skoða bloggið hennar Halvarar systur minnar. Hefur nokkrar áhugaverðar skoðanir ýmsum málum!